138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.

597. mál
[15:03]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í framhaldi af ræðu hv. þm. Péturs Blöndals þar sem hann kom inn á forvalsreglur og forvalshugmyndir Vinstri grænna tel ég rétt að taka fram að Vinstri græn hafa forvöl. Í þeim hafa allir félagsmenn rétt til þátttöku, eins og í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins. Munurinn á forvölum okkar og Sjálfstæðisflokksins er sá að hjá okkur Vinstri grænum má ekki auglýsa. Menn mega ekki kaupa auglýsingar í fjölmiðlum til að koma sér á framfæri. Vissulega jafnar þetta aðstöðu manna og kemur til móts við vandann sem hv. þingmaður hafði áhyggjur af, að ekki stæðu allir menn jafnir. Þannig geta efnamenn ekki haft forskot í framboðum hjá Vinstri grænum.

Ég tel frumvarpið alls ekki vera fullkomið en það er bragarbót á reglunum sem fyrir eru. Það er eitt sem ég vildi nefna í sambandi við það sem bæta mætti úr í næstu endurskoðun, sem ég vona að verði fljótlega, og það er að setja má strangari reglur um það með hvaða hætti fólk í prófkjörum megi taka við framlögum frá fyrirtækjum eða einstaklingum. Tengingin sem getur myndast á milli væntanlegs þingmanns eða borgarfulltrúa við fjárframlag frá einstaklingi eða fyrirtæki getur orðið persónulegri og sterkari en ef um væri að ræða framlag til heils stjórnmálaflokks.