138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku á miðhálendinu.

19. mál
[16:08]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var mjög jákvætt andsvar og gott innlegg. Ég vil taka undir það með hv. þingmanni að við þurfum að auka samvinnuna hér inni. Hann nefndi stórmál, umdeilt mál, sem rammaáætlunin er. Þar hef ég sjálfur ekki gefið mér neina fyrir fram mótaða afstöðu um hvað beri að vernda. Auðvitað eru svo margir sjálfsagðir hlutir í þeim efnum en sumt er á ákveðnu svæði. Það er ljóst að við þurfum að færa einhverjar fórnir en öðru er ekki hægt að fórna.

Í fjölmiðlum var leiðinleg umræða um rammaáætlunina og fulltrúar stjórnmálaflokkanna tjáðu sig eðlilega um það mál eftir að hæstv. ráðherra fór fram, að mér fannst, með dálítið afgerandi hætti. Ég held að það sé betra að ná samstöðu um málin með því að fá rammaáætlunina hingað inn þar sem flestir kostir eru undir í umræðunni þannig að umhverfisnefnd og jafnvel iðnaðarnefnd geti sest yfir málin og skoðað kosti þess og galla. Það skiptir ekki máli í hvaða framkvæmdir við ætlum að fara, við þurfum orku til þeirra framkvæmda og við færum einhverjar fórnir. Ef menn ætla fyrir fram að taka einhvern hluta út úr rammaáætluninni og taka hann út fyrir umræðuna eru það vinnubrögð sem ég held að skili okkur ekki langt. Í umræðu um stór og erfið og umdeild mál verðum við einfaldlega að hafa allt undir. Mér finnst það einfaldlega ekki ganga — við viljum jú byggja upp önnur stjórnmál en viðgengist hafa — að ráðherrar komi með einhverjar tilskipanir um að ákveðin mál verði ekki rædd í tengslum við rammaáætlun. Niðurstaðan verður síðan að koma í ljós.

Ég fagna þeim orðum hv. þingmanns að við eigum að vinna meira þvert á flokka. Ég tel það farsælast í flestum málum að ræða meira um þau en minna. Ef við ræðum meira um málin og (Forseti hringir.) með yfirveguðum hætti er líklegra að við náum betri niðurstöðu en ella.