138. löggjafarþing — 151. fundur,  6. sept. 2010.

hagvöxtur.

[10:46]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það runnu vissulega tvær grímur á marga á föstudaginn þegar nýjar tölur Hagstofunnar birtust. Í sem allra stystu máli er hægt að greina stöðuna með þeim hætti að hagkerfið kemur mun betur út úr þessari efnahagslegu niðursveiflu en við þorðum að vona. Umsvif í hagkerfinu eru meiri en svörtustu spár bentu til, atvinnuþátttaka er meiri þannig að atvinnuleysið er minna. Allt er þetta góðs viti. Hitt er aftur ljóst að fjárfestingarþátturinn er mjög veikur. Þar komum við auðvitað að erfiðum verkefnum sem bíða okkar. Til að ná viðspyrnu þurfum við að grípa til aðgerða. Það má segja að við sjáum kannski í botninn en til að ná viðspyrnu og spyrna okkur frá honum þurfum við að gera tvennt, annað er að tryggja að tekið verði á skuldum heimila og fyrirtækja hratt og örugglega (Gripið fram í.) þannig að ósjálfbær [Háreysti í þingsal.] skuldastaða standi ekki í vegi fyrir efnahagslegri endurreisn. (Forseti hringir.)

(Forseti (ÁRJ): Gefa hljóð.)

Hitt sem við þurfum að gera er að ljúka Icesave-málinu, sem kemur í veg fyrir endurfjármögnun fyrirtækja, til að orkufyrirtækin (Gripið fram í.) geti fjármagnað sig og að hægt sé að tryggja atvinnutækifæri í bráð og lengd. Þetta eru tvö stærstu atriðin sem okkar bíða á næstu mánuðum. (Gripið fram í.)

Forsætisráðherra og fjármálaráðherra voru ekki að blekkja nokkurn mann. Þau voru einfaldlega að lýsa þeirri mynd sem var greinanleg úr þeim gögnum sem þá lágu fyrir. Gögn Hagstofunnar falla í sömu átt en þau sýna betur en nokkuð annað tjónið sem þjóðarbúinu hefur verið búið af því að hafa ekki lokið Icesave-málinu í þessa átt. [Órói í þingsal.] Fjárfestingarþátturinn er mjög veikur og það er grundvallaratriði fyrir okkur að ná að snúa því við hratt og örugglega. (Gripið fram í.)