hagvöxtur.
Virðulegi forseti. Það sem ég legg áherslu á að við gerum á næstu vikum og mánuðum er að blása til stórátaks í að taka á skuldavanda fyrirtækja og heimila. (Gripið fram í.) Það er alveg ljóst að það skiptir máli að þvinga bankana til að vinna hraðar í þeim málum. Gengislánadómurinn getur skipt miklu máli í því að greiða úr óvissu þar og greiða fyrir hraðri umbreytingu á skuldum [Kliður í þingsal.] yfir í sjálfbæra stöðu. En í kjölfarið þurfum við að vinna hratt að því verkefni með bankakerfinu.
Síðan kalla ég eftir þjóðarsamstöðu um að við lokum samningnum um Icesave. Það er algjörlega ljóst þegar við horfum á stöðuna í dag, þegar við horfum á þróun fjárfestinga frá áramótum, að Icesave truflar okkur mikið. Það er sama hvaða orkufyrirtæki það eru, þau eru í vandræðum með fjármögnun sína vegna þess að þessu máli hefur ekki verið lokið. (Gripið fram í: Þetta er ekki rétt.) [Háreysti í þingsal.] Þá verður að ganga frá þessum málum og það þýðir lítið fyrir stjórnarandstöðuna að setja út á ríkisstjórnina fyrir að skapa ekki störf á sama tíma og orkufyrirtækin geta ekki fjármagnað sig vegna þess að ekki (Forseti hringir.) hefur verið gengið frá samningnum um Icesave. [Háreysti í þingsal.] (Forseti hringir.) [Kliður í þingsal.]
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður um hljóð í salnum.)