138. löggjafarþing — 151. fundur,  6. sept. 2010.

skuldir heimilanna.

[10:51]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Í rauninni svaraði hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra rétt áðan spurningunni sem ég ætlaði að bera upp. Hann sagði að nú ætlaði ríkisstjórnin að blása til stórátaks varðandi skuldavanda heimila og fyrirtækja. Spurning mín er hins vegar þessi: Af hverju hefur ekki þegar verið blásið til þessa átaks? Við horfum upp á það nú á haustmánuðum að hér mun fara fram stærsta eignatilfærsla í sögu þjóðarinnar. Ég spurði hæstv. ráðherra margítrekað þegar hann gegndi stöðu hæstv. félagsmálaráðherra hvaða leiðir við gætum farið. Nú á að blása til stórátaks, loksins, eftir allan þann tíma sem ríkisstjórnin hefur starfað saman. Ég spyr hæstv. ráðherra: Getur hann sagt okkur hvað hann ætlar að gera?

Við erum að tala um að millistéttin og ungt barnafólk standi frammi fyrir því að missa eigur sínar. Við horfum á það að íslenska ríkisstjórnin gerir sömu mistök og Finnar og Færeyingar viðurkenna núna að voru stærstu mistök í þeirra efnahagsstjórn þegar þeir glímdu við sömu vandræði og við Íslendingar glímum við í dag. Hæstv. ráðherra hefur svarað mér á þann veg að frysting skulda og uppboða hafi verið stórkostleg leið.

Í Silfri Egils í gær nefndi Sigurður G. Guðmundsson lögmaður að þessi leið hefði engu skilað, ekki nokkru. Ég spyr því: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera? Ég vil ekki yfirborðskenndar yfirlýsingar. Ég vil „konkret“ svör.