fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp fer nú aftur til allsherjarnefndar. Með þessu frumvarpi er verið að standa vörð um peningaþörf flokkanna með aðferðum sem ganga þvert á það sem segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og það sem sjálfur forseti Alþingis hefur lofað. Það þarf alvöruumfjöllun um þetta mál og í því sambandi hefur Hreyfingin nú þegar dreift tillögum sínum í pósthólf þingmanna og óskar eftir því að fram fari vönduð umræða um þetta mál í heild sinni á næsta þingi. Í von um að þingmenn hugsi sig vel um varðandi þetta mikilvæga mál mun ég sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu en við munum halda því á lofti svo lengi sem þörf er á.