landnýtingaráætlun fyrir ferðamennsku á miðhálendinu.
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs til að fagna sérstaklega þessu máli sem flutt er að frumkvæði hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur. Þetta er afar brýnt mál sem hvetur okkur til að gæta vel að því að tryggja markvissara skipulag á hálendinu þegar aukning erlendra ferðamanna til Íslands eykst stórum skrefum. Það þóttu mikil tíðindi á aldamótaárinu þegar fjöldi erlendra ferðamanna náði þrjú hundruð þúsundum. Á þessu ári hillir undir það að fjöldi erlendra ferðamanna verði vel á sjötta hundrað þúsund þannig að aukningin er gríðarleg á einungis áratug. Hins vegar er uppbygging aðstöðu á hálendinu afar handahófskennd, eins og við þekkjum, og afar brýnt að við setjumst niður strax og mótum tillögur um hvernig við viljum haga skipulagi á þessu svæði, þessari viðkvæmu náttúruperlu Íslands, án þess að gengið sé á náttúruna. Þetta er afbragðsmál frá stjórnarandstöðunni og ég hvet þingheim allan til að styðja það.