138. löggjafarþing — 151. fundur,  6. sept. 2010.

fundarstjórn.

[12:00]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Þá er að segja frá því sem framsögumaður gerir væntanlega líka á eftir að í nefndinni komu fram efasemdir um hvort þetta mál ætti yfirleitt að afgreiða á þinginu, hvort það væri ekki réttara að það yrði afgreitt í Stjórnarráðinu sjálfu með vísan til sérstakrar greinar sem sett var inn fyrir nokkrum árum þegar Sjálfstæðisflokkurinn var í meiri hluta bæði hér og í Stjórnarráðinu. Óformleg tillaga kom fram um það í nefndinni að þetta mál yrði ósköp einfaldlega stöðvað þar og ríkisstjórninni bent á að hún gæti notað þessa heimild til að sameina ráðuneyti.

Það þótti ekki ráðlegt að ganga svo langt og einkum voru það fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í nefndinni sem stóðu á móti því að þetta, sem hefði verið einfaldasta afgreiðslan, yrði gert, alveg eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur yfirleitt staðið gegn öllum þörfum breytingum á Stjórnarráðinu og er skemmst að minnast harðvítugrar andstöðu flokksins við stofnun umhverfisráðuneytisins á sínum tíma og andstöðu hans við öll framfaramál og allar tilliðkanir í stjórnsýslunni frá upphafi og hingað til.