þátttaka lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér fer fram. Það lítur út fyrir að þarna séu á ferðinni ágætisfjárfestingarkostir hjá lífeyrissjóðunum á þessum tímapunkti ef menn sitja ekki of lengi á þessum fyrirtækjum og ef menn gæta þess að söluferlið sé hratt, opið og gagnsætt.
Ég tek líka undir það sem kom fram í máli hv. þm. Birkis Jóns Jónssonar áðan, auðvitað eiga lífeyrissjóðirnir líka að koma að samgönguframkvæmdum á landinu. Þarna er til fjármagn sem hægt er að nýta og láta vinna fyrir okkur. Ég ítreka það sem ég tel að hafi komið fram hjá málshefjanda, það er mikilvægt að söluferlið í framhaldinu sé opið, gagnsætt og á grundvelli jafnræðis.
Stóra spurningin þegar kemur að því að koma hjólum atvinnulífsins í gang, og það varanlega, er hvernig menn ætla að svara þeirri spurningu sem fáir virðast vera að svara í dag: Hvernig á að tryggja þessum fyrirtækjum almennileg rekstrarskilyrði í þjóðfélagi sem hefur frá 1994 búið við 6% verðbólgu og gríðarlega háa vexti þar sem a.m.k. 1% þeirra vaxta er til komið vegna sveiflna gjaldmiðilsins? Hvernig svarar t.d. málshefjandi, hv. þm. Óli Björn Kárason, þeirri spurningu? Hvernig ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að búa svo í haginn að einstaklingar og fyrirtæki á Íslandi geti búið við boðleg starfsskilyrði sem eru samkeppnishæf við þær þjóðir sem eru í kringum okkur?
Ég get ekki svarað þeirri spurningu öðruvísi en svo að við verðum að taka hér upp annan gjaldmiðil sem býður okkur upp á meiri stöðugleika og öryggi til framtíðar. En hlýða ber vel á varnaðarorð málshefjanda, hv. þingmanns, sem talaði hér að því er virtist af allnokkurri reynslu um að þetta gæti verið líkast því að pissa í skóinn sinn.