138. löggjafarþing — 152. fundur,  7. sept. 2010.

þátttaka lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu.

[11:21]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst þessi umræða nokkuð á villigötum. Við erum að ræða við hæstv. fjármálaráðherra og það vill svo til að við erum með lög um Bankasýslu ríkisins. Bankasýsla ríkisins er í rauninni bara stofnun í kringum Landsbankann. Bankasýslan kostar 100 millj. kr. á ári. Hvað á Bankasýslan að gera samkvæmt markmiðum sínum? Hún á að tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi. Í 4. gr. c laganna um Bankasýsluna segir að verkefnið sé að hafa eftirlit með framkvæmd eigendastefnu ríkisins eins og hún er á hverjum tíma.

Það sem gerist núna er að Landsbankinn selur, ekki eitt og eitt stórfyrirtæki, heldur sex eða átta slík, á einu bretti. Bankasýslan á að hafa eftirlit með bankanum, það var sett um hann sérstofnun, hvorki meira né minna, á ábyrgð hæstv. fjármálaráðherra. Verklagsreglum sem voru til staðar var bara hent út, það var sagt: Verklagsreglurnar eiga ekki við.

Virðulegi forseti. Hér tala menn oft um að ýmislegt hefði mátt fara betur. Menn tala um að einkavæðingin á sínum tíma hefði mátt fara betur o.s.frv. Ef svo er, hafa menn þá ekkert lært? Ég vek athygli á því að verklagsreglur voru algjörlega brotnar. Meðal annars var það mál unnið með, ekki bara Bankasýslunni heldur þinginu. Verklagsreglunum var hvorki meira né minna en hent út í hafsauga í gríðarlega stórum viðskiptum. Hæstv. fjármálaráðherra verður að (Forseti hringir.) svara fyrir það hvort honum finnist eðlilegt að stofnun sem heyrir undir hann hagi sér með þessum hætti.