þátttaka lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni kærlega fyrir að vekja á nýjan leik máls á málefni Vestia og lífeyrissjóðanna. Ég var með fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra í síðustu viku og varð ansi lítið um svör þá eins og nú, en þetta fjallaði nánast um sama efni.
Mér er sagt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi ekki viljað setja tímamörk á Landsbankann í gegnum Vestia um hvað dótturfélagið mætti liggja lengi með þessi gjörgæslufyrirtæki sem inni í því liggja. Því þurfti að finna nýja kennitölu og þess vegna var farið af stað og rætt við Framtakssjóðinn í þessu tilfelli til að flytja fyrirtækin inn í. Já, vegir skuldanna eru órannsakanlegir. Framtakssjóðurinn gerði í kjölfarið 10 ára plan til að losa sig við þessi fyrirtæki sem við skulum átta okkur á að eru öll á samkeppnismarkaði. Því spyr ég: Hvers vegna eiga lífeyrissjóðirnir að keppa við fyrirtæki á samkeppnismarkaði, jafnvel þegar lífeyrisgreiðendur í sambærilegum fyrirtækjum greiða í þá lífeyrissjóði sem fjárfesta í samkeppnisfyrirtækinu? Þetta er afar einkennilegt.
Í síðustu viku fór ég yfir það að þegar Framtakssjóðurinn keypti Vestia var ekki farið að verklagsreglum sem kveða á um að eignir séu auglýstar og að jafnræðis sé gætt á meðal kaupenda. Það hefur komið hér fram, og allir vita, þingmenn og þjóðin, að Bankasýsla ríkisins er á ábyrgð fjármálaráðherra. Þess vegna er ég undrandi yfir því að hæstv. fjármálaráðherra komi hér enn á ný og lýsi því yfir að hann hafi ekkert með málið að gera. Hvers vegna kallar hæstv. fjármálaráðherra ekki strax eftir upplýsingum um þessa eignatilfærslu? Hvað var þarna um að vera? Ef fjármálaráðherra gerir það ekki í þessari viku er hann algjörlega að bregðast því eftirlitshlutverki sem framkvæmdarvaldið (Forseti hringir.) á að hafa með Bankasýslu ríkisins samkvæmt lögum.