þátttaka lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu.
Frú forseti. Ég ætla að reyna að svara eins og ég get þeim spurningum sem fram komu. Ég fékk reyndar allmargar í viðbót á mig. Ég vil í fyrsta lagi láta það koma fram sem ég geri ráð fyrir að hv. þingmenn þekki að lífeyrissjóðirnir hafa nú sjálfir ákveðið að setja af stað viðamikla rannsókn á starfsháttum sínum og vinnubrögðum á umliðnum árum og ég fagna því.
Í öðru lagi eru eins og ég segi einstakar ákvarðanir eða einstakar fjárfestingar að sjálfsögðu ekki hafnar yfir gagnrýni en mér finnst ástæðulaust að útmála það allt saman svörtum litum. Ég fagna því að heyra málshefjanda hér lýsa sig almennt jákvæðan því að fjármagn úr lífeyrissjóðunum komi til uppbyggingar í atvinnulífinu, enda sé það þá gert á þann hátt sem við erum sátt við. Sé það hins vegar sjónarmið einhverra, eins og ráða mátti kannski af máli sumra áðan, að lífeyrissjóðirnir eigi alls ekki að gera þetta, er það bara annað mál. En þá er ég líka ósammála því. Ég er í þeim hópi sem telur það gott ef við getum nýtt fjármagn úr lífeyrissjóðunum sem þarf að leita sér ávöxtunar og dreifast víða að hluta til í þetta endurreisnarstarf okkar.
Hef ég áhyggjur af kaupum Framtakssjóðsins almennt? Nei, ég hef skoðað samþykktirnar. Ég tel að reynt sé að vanda til verka og nú þegar hafa þarna farið á þriðja tug milljarða í endurfjármögnun bágstaddra fyrirtækja og ég tel það í sjálfu sér gott en tek það fram að sjálfsögðu að framkvæmdin í hverju tilviki er ekki hafin yfir gagnrýni.
Á að endurskoða ákvæði laga um fjárfestingar lífeyrissjóða? Mér finnst fullgilt að fara yfir það hvort það sé kannski ástæða til þess í ljósi reynslunnar og ég nefndi það sérstaklega í ávarpi mínu á ársfundi Samtaka lífeyrissjóða.
Á að breyta stjórnunarfyrirkomulagi lífeyrissjóðanna? Sama svar, fyrst og fremst vil ég gjarnan að lífeyrissjóðirnir sjálfir og aðstandendur þeirra ræði það en ekki stendur á mér að skoða það með þeim, t.d. eins og ég stakk upp á á nefndum fundi að hugsanlega yrði farin blönduð leið, að aðilar vinnumarkaðarins tilnefndu fyrir sitt leyti einhvern hluta stjórnar en sjóðfélagar kysu hluta þeirra beint. Þannig myndast kannski jafnvægi á öðrum forsendum en upp var lagt með þegar lífeyrissjóðirnir urðu til af sögulegum ástæðum og var stjórnað eins og raun ber vitni. (Forseti hringir.)
Ef ég má bara á nokkrum sekúndum, frú forseti, bregðast við því sem hv. þm. Þór Saari sagði. Það er nú í fyrsta lagi misskilningur að það séu reykfyllt bakherbergi í Landsbankanum. Hann er reyklaus vinnustaður. Í öðru lagi er það þannig að markmið með lífeyrissparnaðinum er ekki að búa til sjóði til að fjárfesta. Það er akkúrat öfugt. Markmiðið er að byggja upp fé til greiðslu lífeyrisréttinda í samtryggingarsjóðum með sjóðssöfnun og þess vegna þarf að ávaxta það einhvers staðar.