störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að skora á hæstv. forseta að gefa hv. þm. Árna Þór Sigurðssyni tækifæri til að koma hér upp í þriðja sinn til að svara einföldum spurningum hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um það hvort ástæða þess að ráðist var í ráðherrabreytingar og breytingar á ríkisstjórninni hafi verið sú að tryggja ríkisstjórninni meiri hluta fyrir fjárlögunum. Þetta er einföld spurning sem hægt er að svara með jái eða neii og þarf ekki margar ræður til þess að dósera um eins og hv. þingmaður hefur gert, Árni Þór Sigurðsson, sem svarar út í hött, segir að ríkisstjórnin sé að styrkja sig og bendir í því sambandi á að hv. þm. Þráinn Bertelsson sé genginn til liðs við þingflokk Vinstri grænna. (Gripið fram í.) (VigH: Var einu sinni framsóknarmaður.) Um leið og ég óska þeim hv. þingmanni — eða sendi honum mínar innilegustu samúðarkveðjur [Hlátur í þingsal.] með það að vera genginn til liðs við þann þingflokk, sem er þverklofinn, get ég sagt það fyrir hönd þingmanna að við fylgjumst með því með miklum spenningi hvort hv. þingmaður muni tilheyra órólegu deildinni í þeim þingflokki eða þeim armi þingflokksins sem nú er orðinn uppiskroppa með loforð til þess að svíkja.
Ég vil síðan víkja orðum mínum til hv. þm. Þórs Saaris og bregðast við því sem fram kom í hans máli. Ég get ekki tekið undir það að það ágæta fólk sem sat í nefndinni um framtíð sjávarútvegsmála hafi brugðist almenningi og hagsmunum þjóðarinnar. Kvótamálið hefur verið eitt helsta deilumál þessarar þjóðar og hér inni á þingi og loksins hafa menn komist að einhverri niðurstöðu sem sátt verður um. Við eigum að fagna því. Þar eru aðilar sem þurftu að gefa eftir, bæði þeir sem ekki vildu breyta kerfinu og þeir sem vildu umbylta því. Sem betur fer glittir í sátt og við eigum að styrkja hana en ekki (Forseti hringir.) grafa undan henni eins og hv. þingmaður gerði í ræðu sinni.