IPA-styrkir frá Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það er mikill misskilningur hjá hv. þingmanni að það þurfi að bera fé á bændur til að þeir geti kannað samningsstöðu sína gagnvart Evrópusambandsríkjunum og hvað beri í milli varðandi þá séríslensku hagsmuni sem við viljum standa vörð um hér og að þeim verði ekki fórnað í Evrópusambandsaðildarferlinu. Það legg ég áherslu á að við gerum á okkar sjálfstæðu forsendum. Ef við getum ekki rekið umsókn og farið í samningaviðræður við aðrar þjóðir á okkar eigin forsendum þá veltir maður fyrir sér hversu alvarleg staðan er.
Ég ítreka það, frú forseti, að þessi umsókn er að mínu viti í gangi á íslenskum forsendum og á að vera rekin sem slík. Komi til aðildar, sem ég vona að verði ekki og þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég segi það, þá verður farið í að (Forseti hringir.) breyta hér strúktúr í samræmi við það. En áður en þjóðin hefur sagt sitt í þeim efnum, ef það fer svo langt, (Forseti hringir.) þurfum við ekki að þiggja hér fé til að breyta innri gerð íslensks samfélags.