138. löggjafarþing — 155. fundur,  9. sept. 2010.

Afbrigði um dagskrármál.

[15:02]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Frú forseti. Ég er ekki hlynnt afbrigðum og ég er á móti því að mál séu keyrð í gegnum þingið með þessum hætti, sama hversu flókin þau mál eru. Þetta er hættulegt. Við eigum að vanda okkur við lagasetningu og mér finnast þetta óboðleg vinnubrögð.