138. löggjafarþing — 159. fundur,  13. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[11:21]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Atla Gíslasyni, formanni nefndarinnar, fyrir framsöguna og þann ágæta tón sem mér finnst hann setja fyrir umræðuna sem er fram undan í dag og næstu daga. Jafnframt er ástæða til að þakka nefndarmönnum öllum. Ég vil láta þess getið, vegna þess að formaður nefndarinnar vék að því í máli sínu að nefndin hefði unnið þetta mikla verk undir nokkurri tímapressu, að af minni hálfu hefði vel komið til greina að framlengja tímann ef nefndarmenn hefðu talið þess þörf.

Formaðurinn kom víða við í máli sínu og er mjög knappur tími til að koma með athugasemdir en mig langar til að bera undir hv. formann nefndarinnar, Atla Gíslason, álitaefni sem snúa að landsdómi. Hann vék að því í máli sínu hvort rétt væri að fella úr gildi löggjöfina eins og komið er inn á í skýrslunni (Gripið fram í.) og mig langar til að (Forseti hringir.) biðja formann nefndarinnar að reifa aðeins sjónarmið sem mæla frekar með því en fram kom í máli hans að við fellum niður löggjöfina og höfum annað verklag í framtíðinni um það efni.