138. löggjafarþing — 159. fundur,  13. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[12:27]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni Sjálfstæðisflokksins fyrir andsvarið. Ég játa það að mér hefði aldrei dottið það í hug þegar ég sá að hv. þingmaður bað um andsvar að hv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins færi í andsvar við mig, en að sjálfsögðu er ég hér sem þingmaður þjóðarinnar þegar ég fjalla um þessa skýrslu.

Varðandi Alþingi þá teljum við þetta enga loðmullu. Við teljum mikilvægt að ráðist verði í að styrkja sjálfstæði þingsins með öllum ráðum. Það stendur yfir endurskoðun á þingskapalögum. Við leggjum til að sérstök lög um rannsóknarnefndir verði lögfest. Við tökum fast til orða varðandi oddvitaræði sem við í þingmannanefndinni erum lítt hrifin af. Það þarf að brjóta á bak aftur þau vinnubrögð að oddvitar ríkisstjórnarflokkanna taki (Forseti hringir.) ákvarðanir sem Alþingi er ætlað að framfylgja — svo að ég vitni (Forseti hringir.) í orð hv. þingmanns Ragnheiðar Ríkharðsdóttur — eins og kassadömur.