138. löggjafarþing — 159. fundur,  13. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[14:33]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf) (andsvar):

Ég vil bara ítreka það hér og nú að ég er sammála því mati hv. þingmanns að ef menn hefðu verið of opinskáir að tala um vandann hefði það vissulega getað leitt til þess að einhver banki hefði fallið. Hins vegar veltir maður því fyrir sér: Hvar hefðum við verið stödd ef fjármálaáfallið hefði átt sér stað um vorið, í febrúar eða mars, eins og það gerðist í október? En ég ítreka það sem ég sagði í fyrra andsvari mínu að áfellisdómurinn er fyrst og fremst um skort mati á greiningu.

Svo var það kannski ekki bara breskur aðili sem felldi banka, kannski átti íslenskur seðlabankastjóri þar einhvern hlut að máli.