skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér færi á því að koma í annað andsvar því að nú koma vonandi spurningarnar.
Ég spyr hv. þingmann hvort þingmannanefndin og rannsóknarnefndin líti á Ísland sem eyland. Það er eiginlega ekkert fjallað um útlönd í þessari skýrslu, það er eins og sökin sé öll innan lands og ekkert komi að utan. Ég ætla að spyrja hv. þingmann hvort framvirkir samningar eins og þeir eru viðhafðir í útlöndum hafi komist til tals þar sem sama olíutunnan er seld og keypt 10 þúsund sinnum, hvort bindiskylda í heiminum sem er mjög lág sé eðlileg, þ.e. bankarnir geti þá spólað upp eigið fé, hvort veilan í hlutabréfaforminu sem ég nefndi, sem ég tel vera eina aðalástæðuna fyrir hruninu, hafi komið til umræðu í nefndinni. Menn gátu með löglegum hætti notað hlutabréfaformið til að spóla upp eigið fé og hagnað og síðan þegar áfallið varð hrundi þetta allt saman eins og spilaborg og ekkert sat eftir. Komst þetta til tals? Þetta eru alþjóðlegar reglur. Ísland er nefnilega ekki eyland.
Þegar Icesave-reikningurinn fór í gang í Bretlandi og síðan Hollandi þótti hann tær snilld, ekki bara á Íslandi heldur mátu matsfyrirtækin Landsbankann hærra en hina íslensku bankana vegna þessarar snilldar. Komst ábyrgð matsfyrirtækjanna til tals í nefndinni og ábyrgð þeirra sem lánuðu svona gífurlega peninga til Íslands? Peningarnir komu samt ekki til Íslands því að þeir fóru beint aftur út. Ísland var notað sem miðstöð til að taka við peningum og dreifa þeim út um heiminn, þar á meðal Icesave. Ég held og fullyrði að lítið af Icesave-peningunum hafi nokkurn tímann komið til Íslands.