138. löggjafarþing — 160. fundur, 14. sept. 2010.
fjarvera ráðherra.
Frú forseti. Fyrst við höfum 15 mínútur auðar vildi ég gjarnan koma inn á fundarstjórn forseta sem byrjaði ekki björgulega. Þegar við byrjuðum að ræða skýrsluna og ég ætlaði að fara í andsvar tjáði hæstv. forseti þingheimi að hann ætlaði sér að raða þingmönnum eftir flokkslínum. Það er einmitt undirstrikað í skýrslunni að ekki eigi að fara að flokkslínum eða leiðtogaræði. Ég vildi gjarnan koma þessu að.