skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsögu hennar í þessu máli. Það er greinilega ýmislegt sem betur má fara og ýmislegt sem búið er að gera, en að vísu hafði hæstv. forsætisráðherra ekki tíma til þess að bíða eftir því að þingmannanefndin kæmist að niðurstöðu í þessu máli, svo mikið lá á að gera hér stjórnkerfisbreytingar. Þar á meðal réðst forsætisráðuneytið í það 1. október 2009 að setja á stofn lagaskrifstofu við forsætisráðuneytið. Það undrar marga að ráðist hafi verið í þær úrbætur á grundvelli skýrslu sem lá þar fyrir frá aðilum úr háskólasamfélaginu, vegna þess að þingmannanefndin var að störfum. Enda kom það í ljós í umræðum á Alþingi í gær hjá formanni þingmannanefndarinnar að tímabært væri orðið að aðskilja framkvæmdarvald og löggjafarvald. Lýsti hann yfir að nú væri sjálfstæðisbaráttan hafin fyrir því að löggjafinn mundi komast undan framkvæmdarvaldinu.
Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra og óska eftir því að hún svari því enn skýrar en fram kom í framsöguræðu hennar: Hver var ástæðan fyrir því að ráðist var í að stofnsetja lagaskrifstofu í forsætisráðuneytinu í stað þess að sjá til þess að sú skrifstofa væri innan Alþingis og mundi þar skjóta styrkari stoðum undir lagasetningu á Alþingi?
Í öðru lagi: Er hæstv. forsætisráðherra tilbúin að taka það skref með þingheimi að stíga hér fram og samþykkja það frumvarp sem fyrir liggur um lagaskrifstofu Alþingis, að leggja niður lagaskrifstofuna í forsætisráðuneytinu til þess að fullur aðskilnaður verði innan tíðar milli þessara greina ríkisvaldsins?