skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Virðulegi forseti. Á einni mínútu er ekki tækifæri til að fara yfir mikið en það er margt sem gefur hins vegar tilefni til þess að bregðast við úr ræðu hæstv. fjármálaráðherra. Ég ætla að reyna að taka það í stikkorðastíl.
Seðlabankinn, átti hann að setja bankana á hausinn á fyrri hluta ársins 2008? Er það það sem hæstv. ráðherra telur að hann hefði átt að gera með því að stöðva frekari lánveitingar á meðan allir aðrir seðlabankar úti um víðan völl, í Evrópu og í Bandaríkjunum, juku aðgengi bankanna að lánsfé vegna lausafjárkrísunnar?
Hvað telur hæstv. ráðherra að neyðarlögin hafi kostað Seðlabankann í töpuðum veðum? Er það virkilega svo að ríkissjóður beri þungar byrðar vegna þess að hann þurfti að leiðrétta eiginfjárhlutfall Seðlabankans? Því hefur ranglega verið haldið að fólki allt frá því árið 2008. Það er bara rugl.
Ég verð hér í seinna andsvari mínu að koma inn á önnur atriði og þá ætla ég að fara sérstaklega yfir (Forseti hringir.) ræðu hæstv. ráðherra hvað viðvíkur ráðherraábyrgðinni.