skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Ég vil byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir yfirlitið. Það er eitt í sambandi við hagfræðina, hún er nú merkileg að mörgu leyti. Það er ljóst að á árunum fyrir 2008 safnaði ríkissjóður 170 milljörðum kr. inn í Seðlabanka Íslands. 100 milljarðar af þessum u.þ.b. 170 voru notaðir í fyrra til að fjármagna hallann og um 70 á þessu ári. Nú er það svo í hagfræði að þegar svona peningar eru teknir út úr hagkerfi eins og þarna var gert, þá jafngildir það nákvæmlega því að lagður hafi verið á skattur hvað varðar þenslu. Þannig að þetta var sú varúðarráðstöfun sem var gerð, að leggja í kornhlöðurnar. Hæstv. fjármálaráðherra er örugglega glaður að hafa þessa fjármuni núna til þess að borga fyrir viðskiptahallann. Mundi hæstv. fjármálaráðherra fallast á þessa hagfræði hjá mér?