skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Virðulegi forseti. Þetta er grundvallaratriði í þessu máli. Þingmannanefndin, en meiri hluti hennar lagði til að ákæra skyldi fjóra fyrrverandi ráðherra fyrir að hafa á árinu 2008 sýnt slíka vanrækslu að það sé refsivert og varði fangelsisvist, hafði ekki rannsóknarheimild.
Þegar Tamílamálið svokallaða fór fyrir Mannréttindadómstól Evrópu var niðurstaða dómsins að þar hefði verið rétt á málum haldið, enda hafði sú nefnd rannsóknarheimildir til að skoða það mál sem þar um ræddi.
Hér skiptir öllu máli að gera það sem er rétt. Hér skiptir öllu máli fyrir þingmenn að fara að lögum. Það eru lög í þessu landi. Þeir sem eru sakaðir um glæpi eins og hér er um að ræða, við skulum tala íslensku, hafa rétt á því að málsmeðferð sé með réttum hætti. Þetta er grundvallaratriði í þessu máli og þessu verða þingmenn að fylgja. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)