skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Herra forseti. Ég taldi mig einmitt hafa borið ábyrgð með því að biðjast afsökunar, þegar verið er að tala um að enginn hafi borið ábyrgð. Ég benti einmitt á hvað þær tilskipanir væru varasamar og ég nefndi dæmi um það. Ég nefndi líka dæmi um það hvað lagasetning eins og lán til starfsmanna getur valdið óhemjumiklu tjóni fyrir þjóðfélagið og býr til froðu og hefur hugsanlega frestað gjaldþroti bankanna um einhverja mánuði, jafnvel hálft eða heilt ár, af því að þeir bjuggu sér til eigið fé með þessu.
Ég varð að koma inn á þetta og skerpa á því sem hv. þingmaður hefur sagt og benda honum á að það hefði jú einhver tekið ábyrgð á gerðum sínum.