138. löggjafarþing — 161. fundur,  15. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[15:14]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ásbirni Óttarssyni fyrir andsvarið. Í sjálfu sér vil ég ekki fara í hnútukast um það hver hafi stundað mesta oddvitaræðið í íslenskum stjórnmálum á undanliðnum árum, hver getur dæmt fyrir sig.

Mér finnst úrbæturnar vera miklu mikilvægari en að benda á þá sem kannski helst hafa stundað oddvitaræði. Þar vil ég deila með hv. þingmanni, sem ég sit reyndar með í hv. fjárlaganefnd, hugmyndum um breytt verklag þingsins sem mér finnst mjög mikilsvert og tel að muni geta slegið á meint oddvitaræði sögunnar hvort heldur við horfum til okkar tíma eða þess sem liðinn er. Ég horfi til þess að auka til muna þátt stjórnarandstöðunnar í störfum nefnda og að t.d. verði horft til þess að þingmenn úr stjórnarandstöðunni komi inn í einhvers konar formannateymi nefndanna, verði þar varaformenn, jafnvel formenn, og búið verði til þriggja manna teymi í hverri nefnd og þeim fækkað þar sem þáttur stjórnarandstöðunnar verði mjög virkur. Þeir geti a.m.k. fengið varaformenn ef ekki formenn í nefndir. Það má sjá fyrir sér þriggja manna kerfi þar sem stjórnarmeirihlutinn hafi þó meiri hluta í því nefndarteymi. Ég held að það gæti slegið á oddvitaræðið sem hefur verið hér við lýði að styrkja nefndirnar hvað varðar völd og sérstaklega forustu þeirra.

Ég mun nota svo seinni tíma minn til að svara betur því sem fram kom í síðari hluta andsvars hv. þingmanns.