138. löggjafarþing — 161. fundur,  15. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[16:55]
Horfa

Árni Johnsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það eru tvö atriði sem mig langar aðeins að vekja máls á í framhaldi af ræðu hæstv. menntamálaráðherra.

Í fyrsta lagi ræddi ráðherrann um það að ekki ætti endilega að vera samhengi á milli nefndarskipunar og valdaþátta í framkvæmdarstjórnarkerfinu. Það er nú erfitt svo sem að komast hjá því að mörgu leyti, en það má minna á að yfir a.m.k. 90% af málum úr nefndum þingsins eru samþykkt með samkomulagi. Þetta segir kannski meiri sögu um störf alþingismanna en menn þekkja úr fjölmiðlum landsins. Það er þó sjálfsagt að horfa í það að þarna sé ekki allt í gadda slegið, eins og Vestfirðingar mundu orða það, heldur að þarna sé sveigjanleiki og menn byggja á trausti.

Það kemur kannski að því sem ég vék að þegar menn læra í hvaða áhöfn þeir eru, hvort sem það er þingnefnd eða annað, þá taka þeir tillit til þess, annars eru þeir ekki hæfir í þeirri áhöfn. Þess vegna getur stjórnarandstöðuþingmaður alveg stýrt málum ef hann kann þær leikreglur að taka tillit til þess hvar í rauninni yfirvaldið liggur. Það hlýtur að liggja hjá stjórnarsinnum.

Í öðru lagi vil ég undirstrika það varðandi umræðuna um kynjagreiningu að jafnréttisumræðan á að vera hafin yfir kynjagreiningu, hún á að vera hafin yfir hana. Ég held að það sé ekki konum til framdráttar eins og margir halda að klifa sífellt á því að á konur halli. Það gerir það að mörgu leyti.

Harðsæknustu atvinnuverkefnin á landinu eru konur í fiskvinnslu og heilbrigðiskerfinu. Þær njóta ekki þess sem skyldi. Þannig má taka sérstaklega á mörgum þáttum en jafnréttisumræðan á að vera hafin yfir kynjagreiningu.