skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir athugasemdirnar. Ég vil kannski fyrst nefna að varðandi háskólana þá er hugmyndin sú að leggja ákveðinn grunn og skoða hreinlega hlutverk þeirra, m.a. út frá löggjöf nágrannalanda okkar. Ætlun mín er að fá að kynna einhverjar hugmyndir fyrir menntamálanefnd Alþingis í byrjun þings og vonandi verður hægt að vinna þær áfram út frá þeim viðbrögðum sem þar verða. Ég er sammála hv. þingmanni um að það sé mjög mikilvægt að við reynum að ná sem breiðastri samstöðu um þessi mál.
Hvað varðar fjölmiðlamálin og fjölmiðlastofuna þá leyfi ég mér að segja að ég tel að fjölmiðlastofa sé aðeins ein leið til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að í frumvarpinu en þó vil ég líka segja að eitthvert utanumhald verður að vera utan um þau verkefni sem þar er kveðið á um, til að mynda það að tryggja þetta gagnsæja eignarhald, hvort sem það heitir fjölmiðlastofa, fjölmiðlanefnd eða hvaða leið er farin, en þetta var sú leið sem ég ákvað að leggja fram. Hún hefur orðið fyrir ákveðinni gagnrýni og við munum fara yfir hlutverk hennar á þeim tíma sem gefst. Ég legg hins vegar mikla áherslu á að við gerum ákveðnar kröfur í þessu frumvarpi um aukið utanumhald með starfsemi fjölmiðla. Það liggur fyrir að það muni alltaf kalla á einhvern hreinan kostnað að hafa þessar upplýsingar aðgengilegar, eins og við þekkjum til að mynda frá Noregi og Svíþjóð þar sem hægt er að fara inn á einfalda heimasíðu og rekja sig í gegnum eignarhald fjölmiðla. Við þurfum líka að horfa í það en hins vegar er ég reiðubúin til að skoða þær leiðir.
Hvað varðar hins vegar viðbrögð fjölmiðla við rannsóknarskýrslunni þá hef ég ekki heildstæðar upplýsingar um það. Mér er hins vegar kunnugt um að Ríkisútvarpið hefur farið yfir þetta í sínum ranni, sérstaklega hvað þeir starfsmenn sem þar vinna hefðu mátt gera betur og hvað þeir telja sig hafa gert vel og annað slíkt, (Forseti hringir.) en ég hef ekki heildstæðar upplýsingar um það frá fjölmiðlaflórunni.