málshöfðun gegn ráðherrum.
Virðulegur forseti. Ég tel mig hafa fært ágætisrök fyrir því í ræðu minni áðan af hverju við teljum að Björgvin G. Sigurðsson eigi að njóta vafans. Það er þannig að stjórnsýsluviðmið og refsiviðmið eru ekki hin sömu og það þarf líka að skoða yfir hvaða upplýsingum fyrrverandi ráðherrar bjuggu og í hvernig stöðu þeir voru innan ríkisstjórnarinnar til að bregðast við þeim upplýsingum með virkum hætti. Við fórum yfir alla hluti og reyndum að finna vafa hjá öllum, ef svo má að orði komast, vegna þess að við skoðuðum bæði það sem gæti leitt til sektar og til sýknu hjá öllum þessum ráðherrum.