málshöfðun gegn ráðherrum.
Frú forseti. Ég held að það hafi komið mjög skýrt fram í svari varaformanns Sjálfstæðisflokksins að hún vill helst ekki ræða hvort það hafi verið fólk, stefna eða hvort tveggja sem brást í aðdraganda hrunsins. Hins vegar kom fram í ræðu þingmannsins að hún taldi að afstaðan sem kemur fram í þeirri þingsályktun sem við ræðum hér sýni að við höfum unnið þetta á ómálefnalegan og tilviljunarkenndan hátt vegna þess að við birtum ekki rökstuðning og ástæðu fyrir því að við teljum ekki ástæðu til að ákæra aðra ráðherra.
Þá spyr ég: Gildir það sama varðandi félaga þingmannsins í þingmannanefndinni þar sem þeir birtu engan rökstuðning fyrir ákvörðun sinni? Ég spyr hvort þingmaðurinn sé tilbúinn að taka undir það, varðandi sitt mat, að þetta hafi verið ómálefnaleg og tilviljunarkennd afstaða hjá þeim.