málshöfðun gegn ráðherrum.
Virðulegi forseti. Ef ég nota rök hv. þingmanns vil ég fá spyrja hann annarrar spurningar: Hvernig í ósköpunum á þingheimur allur, fyrir utan þá níu sem eru búnir að vinna að þessu máli frá 15. janúar, að geta tekið ákvörðun um það í atkvæðagreiðslu hvernig eigi að ljúka þessu máli ef hv. þingmaður segir að hann treysti ekki allsherjarnefnd Alþingis til að fjalla um málið? Allsherjarnefnd er þó með skoðun mála á sínu sérsviði er varða réttarfar, réttarkerfi, réttarríki og þau álitamál sem hér hafa fyrst og síðast verið uppi í umræðunni, m.a. lögin um landsdóm sem þessi ágæta þingmannanefnd talar um að þurfi að endurskoða. En þessir sömu þingmenn geta samt sem áður fallist á að ákæra á grundvelli laga sem þeir sjálfir telja að séu ófullnægjandi. Hvað er verið að segja? Hvaða (Forseti hringir.) skilaboð eru það til þingheims?