138. löggjafarþing — 163. fundur,  20. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[16:36]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég spurði þessara spurninga í nefndinni vegna þess að mér þótti ástæða til að heyra sjónarmið þeirra sérfræðinga sem við okkur töluðu. Hvort skoðun mín í dag varðandi ákæru á hendur ráðherrum væri önnur ef sérfræðingarnir hefðu sagt að vissulega yrði íslenska ríkið fyrir skaðabótakröfu? Hefði ég þá hugsað einhvern veginn öðruvísi?

Virðulegur forseti. Ef svo skilyrðislaust svar hefði komið frá sérfræðingunum um að yfir íslenska ríkinu vofði skaðabótaábyrgð vegna þess sem stendur um Icesave í þessum þingsályktunartillögum ætla ég rétt að vona að flutningsmenn þessara tillagna hefðu velt fyrir sér hvort ekki ætti þá að fella það brott. (Gripið fram í.)

Virðulegur forseti. Það hefði held ég ekki breytt skoðun minni. Ég er enn þeirrar skoðunar og verð þeirrar skoðunar að saknæmisskilyrði séu ekki uppfyllt. Þess vegna er ég hvorki flutningsmaður þessara tillagna né get stutt þær á nokkurn hátt.