138. löggjafarþing — 164. fundur,  21. sept. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Ólafi Þór Gunnarssyni, 3. þm. Suðvest., um að hann geti af persónulegum ástæðum ekki sótt þingfundi á næstunni sem varamaður á Alþingi. Í dag tekur 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi, Margrét Pétursdóttir, sæti á Alþingi í hans stað.

Margrét Pétursdóttir hefur áður setið á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.