138. löggjafarþing — 164. fundur,  21. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[14:29]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Ég hef ekki lagt í vana minn að leggja orð Jóhönnu Sigurðardóttur á minnið enda er hún ekki leiðtogi lífs míns, en í ræðu sinni gaf hún til kynna að niðurstaða þingmannanefndarinnar væri ekki fagleg og hún væri illa unnin. Það finnst mér verulega ámælisvert.