málshöfðun gegn ráðherrum.
Hæstv. forseti. Ég rengi ekki það sem hv. þingmaður segir um sjónarmið sem fram hafa komið í samtölum tiltekinna og nafngreindra sérfræðinga í þingflokki Samfylkingarinnar, ég rengi það ekki. Ég vildi gjarnan að slík sjónarmið kæmu þá fram opinberlega þannig að hægt væri að rökræða þau. Það er hugsanlega svigrúm til að gera það í þingnefnd milli umræðna, að kalla eftir þeim sjónarmiðum, hvaða önnur sjónarmið en lögfræðileg þingmenn eiga að hafa í huga þegar þeir taka afstöðu til þess hvort gefa eigi út ákærurnar eða ekki. Það kemur í ljós. Ég ætla heldur ekki að gagnrýna þingflokk Samfylkingarinnar fyrir að undirbúa sig undir þessa málsmeðferð með því að kalla til sérfræðinga.
Hitt er annað mál að til að hægt sé að ræða sjónarmið af þessu tagi, skoða rökstuðninginn fyrir þeim og fjalla um þau að öðru leyti, er nauðsynlegt að þau komi þá líka fram opinberlega, þau sjónarmið sem verið er að vísa til og byggja á. Það er atriði sem ég vildi koma að í þessu sambandi.
Mér brá vissulega þegar hv. þingmaður vísaði til sáttanefndar í Suður-Afríku en svo fór hún til baka með það vegna þess að þar er auðvitað um allt annað mál að ræða. Sú brýna þörf sem var fyrir sáttargjörð í því samfélagi er náttúrlega allt önnur og af allt öðrum toga og af allt öðrum rótum runnin en það ástand sem við búum við í íslensku samfélagi í dag, ætla ég þó ekki að draga dul á að afleiðingar efnahagshrunsins haustið 2008 hafa verið alvarlegar fyrir mjög (Forseti hringir.) marga í samfélagi okkar.