138. löggjafarþing — 167. fundur,  27. sept. 2010.

málshöfðun gegn ráðherrum.

706. mál
[16:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Með því að halda upplýsingum frá fyrrverandi viðskiptaráðherra er honum gert ókleift að sinna skyldum sínum. Með því að gera það segi ég að farið sé inn á hans valdsvið vegna þess að það takmarkar getu hans til að sinna skyldum sínum eins vel og hægt væri.