138. löggjafarþing — 168. fundur,  28. sept. 2010.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá Höskuldi Þórhallssyni um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni þar sem hann er staddur erlendis. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Huld Aðalbjarnardóttir menningar- og fræðslufulltrúi. Kjörbréf Huldar Aðalbjarnardóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.