138. löggjafarþing — 169. fundur,  28. sept. 2010.

skýrsla þingmannanefndar til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

705. mál
[16:05]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er mjög merkilegur dagur. Það er merkilegt að okkur hafi tekist að finna sátt um það hvernig við ætlum að leggja línurnar fyrir framtíðina og að okkur tókst öllum að samþykkja það sem rannsóknarnefnd Alþingis komst að niðurstöðu um. Ég hvet alla hv. þingmenn til að láta þetta ekki verða einungis í orði heldur jafnframt á borði.