139. löggjafarþing — 1. fundur,  1. okt. 2010.

rannsókn kjörbréfs.

[16:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Atla Gíslasyni, 4. þm. Suðurk., dags. 28. september sl.:

„Þar sem ég get ekki sótt þingfundi á næstunni af persónulegum ástæðum óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi, Jórunn Einarsdóttir grunnskólakennari, taki sæti á Alþingi á meðan en 1. varamaður flokksins í kjördæminu hefur boðað forföll.“

Jafnframt hefur borist skeyti frá Arndísi Soffíu Sigurðardóttur, 1. varamanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi, um að hún geti ekki tekið sæti á Alþingi að þessu sinni.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Jórunni Einarsdóttur sem er 2. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Suðurkjördæmi. Jafnframt hélt kjörbréfanefnd fund í hádeginu í dag til þess að fjalla um kjörbréfið.