stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Frú forseti. Kæru landsmenn. Það er með trega í hjarta sem ég stend hér í kvöld og flyt mína fyrstu tölu á Alþingi Íslendinga. Ég á mér þann draum að Alþingi geti orðið þjóðinni aftur stofnun þess verðug að litið sé til hennar með virðingu. Sú er svo sannarlega ekki raunin í kvöld. Í stað þess að standa hér með stolti hálfskammast ég mín fyrir stöðuna sem hér ríkir. Alþingi situr algjörlega fast í skítlegu eðli pólitíkur, sérhagsmunapots og skotgrafahernaðar á sama tíma og stórum hluta þjóðarinnar blæðir út á allsnægtaborði fjármagnseigenda. Varðhundar valdsins, eins og Vilmundur Gylfason orðaði það svo ágætlega, lifa enn góðu lífi og fitna eins og púkinn á fjósbitanum á kostnað almennings, á kostnað fjölskyldna sem allt hafa misst á sama tíma og vinir valdsins og fjármagnsins fá þúsundir milljóna afskrifaðar hjá ríkisbankanum Landsbanka Íslands.
Við erum hér í kvöld eins og föst í dramatískri endurgerð af ævintýrinu um nýju fötin keisarans. Fyrir utan húsið stendur mannfjöldinn og bendir okkur á augljósa nekt þingsins, nekt sem öllum má vera ljós, en á sama tíma situr þingheimur inni og ræðir um framtíðarsýn og virðingu. Afneitunin er alger og Alþingi Íslendinga virðist með öllu vanhæft til að gera upp afleiðingar hrunsins sem hér varð, vanhæft til að snúa vörn í sókn með hagsmuni fólksins í fararbroddi.
Samkvæmt nýjum tölum úr skoðanakönnunum nýtur þingið nú aðeins mikils trausts hjá 10% þjóðarinnar. Virðingu þarf að ávinna sér, það er ekki nóg að tala bara um hana endalaust í þeirri von að traust þjóðarinnar til þingsins verði þannig endurreist. Hversu lengi á meðvirknin og afneitunin að vara? Hversu lengi ætlar þingið að reyna að halda því blákalt fram framan í blæðandi þjóðina að lausnir fjármagnseigenda til að hámarka arð sinn séu okkur öllum til góðs?
Ég tók þátt í nýju framboði í búsáhaldabyltingunni vegna þess að ég gat ekki setið þögull heima lengur, vegna þess að ég ól í brjósti mér þann draum að hér væri hægt að koma aftur á raunverulegri þrískiptingu valdsins og draga verulega úr spillingu, vegna þess að ég á mér draum um að hér verði komið á verulegum lýðræðisumbótum með stórauknum möguleikum á aðkomu fólksins að ákvörðunum, lýðræðisumbótum í endurgerðri stjórnarskrá fyrir Íslendinga, samin með hagsmuni okkar í huga og sýn um það samfélag sem við viljum skapa.
Núverandi ríkisstjórn tók heils hugar undir flestar þær hugmyndir og lofaði stórkostlegum breytingum. Hvar eru þær breytingar nú? Hvað varð um frumvarp til laga um þjóðaratkvæði? Jú, það varð að lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað varð um frumvarp um persónukjör þvert á flokka? Hvað verður um niðurstöðu ráðgefandi stjórnlagaþings? Hvaða varðhundar sérhagsmuna verða tilbúnir til að eyða tveimur milljónum króna í framboð til stjórnlagaþings? Var ekki hugmyndin að fá sem víðtækasta þátttöku frá þjóðinni?
Alþingi Íslendinga hefur sýnt með skýrum hætti vanhæfi sitt til að framfylgja vilja þjóðarinnar til breytinga, vanhæfi sitt til að minnka eigið vald og dreifa því til fólksins. Ríkisstjórnin og Alþingi eru rúin trausti þjóðarinnar og krafan um kosningar er hávær. Það er augljóst að fólkið sem slær taktinn hér fyrir utan húsið í kvöld kom ekki saman til að lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórnina eða vinnubrögð Alþingis. Krafa fólksins er skýr. Krafan er að við snúum okkur að því að vinna að sameiginlegum lausnum sem nýtast almenningi þvert á flokka gegn sérhagsmunum þeirra.
Ég stend hér í kvöld með sorg í hjarta því að ég get ekki séð að nein marktæk breyting til batnaðar hafi orðið frá síðustu kosningum, a.m.k. ekki breyting sem hægt er að þakka atvinnustjórnmálamönnum fyrir. Þær breytingar sem búið var að lofa þjóðinni urðu hjómið eitt.
Nú er staðan m.a.s. sú að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýsir því yfir í fjölmiðlum að ekki verði um fleiri úrræði fyrir skuldara að ræða, að nú sé komið að aukinni þátttöku fólksins sjálfs. Hver stjórnar eiginlega þessu landi?
Krafan um kosningar er hávær en ég óttast að kosningar breyti nákvæmlega engu fyrir almenning í landinu á meðan nauðsynlegar lýðræðisumbætur hafa ekki orðið að veruleika. Kosningar í dag gerðu væntanlega lítið annað en að koma gömlum leikmönnum aftur inn á leikvöllinn, leikmönnum sem þegar hafa sýnt algjört skilningsleysi á leiknum og nauðsynlegri sókn. Það er ekki svo langt síðan að skipt var inn á völlinn síðast og engra stórfenglegra breytinga varð vart. Við virðumst föst í nákvæmlega sama leikskipulaginu. Hægri og vinstri, velferðarstjórn — þetta eru hugtök sem hafa lítið gildi í samfélagi þar sem varðhundar valdsins og fjármagnsins stýra öllu, í samfélagi þar sem ríkir auðræði en ekki lýðræði.
Krafan um utanþingsstjórn sem var mjög hávær fyrir síðustu kosningar er nú komin á loft á ný. Krafan um utanþingsstjórn er skýlaus yfirlýsing til ríkisstjórnarinnar og þingsins um að atvinnupólitíkusum og varðhundum sérhagsmuna sé ekki treyst til verksins. Það vandaða starf sem unnið var í rannsóknarnefndinni og birtist í ítarlegri skýrslu hennar sýnir okkur svo um munar að enginn er tilbúinn til að horfast í augu við sekt sína, enginn.
Þingmenn Hreyfingarinnar bentu á það strax frá upphafi að þingið væri algerlega vanhæft til að fjalla sjálft um niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar og ákvarða hvort ákæra skyldi vinnufélaga og samflokksmenn fyrir landsdómi. Það vanhæfi hefur nú opinberast okkur með skýrum hætti. Frú forseti. Ef Alþingi Íslendinga ætlar að takast áfram á við nekt sína og vanhæfi með orðskrúði og afneitun hef ég litla trú á því að dagar ríkisstjórnarinnar verði öllu fleiri. Ég vona bara að byltingin verði ekki blóðug.