fjárlög 2011.
Forseti. Hv. þingmaður spyr um ríkisfjármálahópinn sem vann að undirbúningi eða gerð þessa fjárlagafrumvarps sem ég sat í ásamt fleirum. Hv. þingmaður spyr: Hvernig gekk vinnan? Hún gekk ágætlega, hún gekk bara fínt. Hún liggur m.a. frammi í fjárlagafrumvarpinu sem liggur fyrir þinginu að hluta til. Auðvitað komum við ekki að öllum þeim verkum. Við komum að undirbúningi vinnunnar og leyndum því ekki neitt. Það kom oft til umræðu í fjárlaganefnd og hefur margoft komið fram í opinberri umræðu. Ég sé ekkert óeðlilegt við það.
Hversu oft fundaði nefndin? Ég hef ekki tölu á fjölda funda, því miður, ég skal láta kalla eftir þeim upplýsingum ef hv. þingmaður óskar eftir því.
Hvernig gengu fundir eftir að hv. þm. Guðbjartur Hannesson hætti í hópnum? Það voru engir fundir haldnir í ríkisfjármálahópnum eftir að hann hætti vegna þess að þá var vinnunni lokið og það leið talsverður tími (Forseti hringir.) þar til hv. þingmaður varð ráðherra.