fjárlög 2011.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson spurði hvort ég hygðist útfæra þennan niðurskurð með einhverjum öðrum hætti og tilgreindi þá Ísafjörð og Sauðárkrók. Þar á hann við heilbrigðisstofnanirnar og þann mikla niðurskurð sem er á sjúkrasviðunum á þessum stöðum.
Áður en ég svara því langar mig að segja að ég hitti forstöðumenn allra þessara stofnana og gerði þeim grein fyrir því sem við erum að glíma við, að íslenska ríkið tapar einhvers staðar á milli 250 og 270 millj. kr. á dag ef við stöndum við fjárlög 2010. Það er augljóst að víða verður komið við til að ná þessari aðlögun.
Það hefur verið kvartað yfir því að það sé flatur niðurskurður og það er rétt, undanfarin ár hefur verið flatur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu og þess vegna er gripið til þess að forgangsraða og reyna að átta sig á því hvar bera megi niður, með því að jafna þjónustuna í landinu, styrkja heilsugæsluna og tryggja heilsugæslu sjúkrahúsa á ákveðnum stöðum og minni sjúkrahúsum en verja einna helst þessa tvo stóru spítala, Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og Landspítalann í Reykjavík, og raunar heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu líka. Þótt ég tali um að verja þessa tvo spítala og heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu verða allir fyrir niðurskurði en hann verður vægari þarna en annars staðar. Það er líka haldið svolítið í varðandi Ísafjörð, Neskaupstað og Vestmannaeyjar til að reyna að tryggja að þar sé ákveðin grunnþjónusta, bráðamóttaka og annað slíkt. Það er verkefnið sem glímt hefur verið við. Þegar ég hitti forstöðumenn þessara stofnana lagði ég það þannig upp að við hefðum tíma til að skoða málin að nýju þegar frumvarpið væri komið til fjárlaganefndar. Þá mundi ég skoða þær tillögur sem fram kæmu hjá viðkomandi aðilum, hvernig þetta kæmi út hjá einstökum aðilum þannig að ég fengi tilfinningu fyrir hvernig þetta horfir nákvæmlega. Eins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra hafði lofað, og ég tek undir það, munum við að sjálfsögðu skoða með hvaða hætti þetta bitnar á þessum stöðum og ef einhverjar nýjar niðurstöður koma fram. Svarið við spurningunni er því já (Forseti hringir.) en markmiðið um heildarniðurskurðinn verður að halda nema eitthvað nýtt komi til í meðförum þingsins.