139. löggjafarþing — 5. fundur,  6. okt. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[14:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan fjögur í dag fer fram umræða utan dagskrár um skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Málshefjandi er hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.