sértæk skuldaaðlögun.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa fyrirspurn. Vissulega er það svo að skýrslan bendir til þess að það sé áhyggjuefni hversu fá fyrirtæki og einstaklingar hafa farið í gegnum sértæka skuldaaðlögun. Það eru skýringar á báðum endum og við þurfum að vinna á þeim hindrunum sem þar eru í vegi. Við sjáum að geta aðila til að takast á við þetta verkefni hefur verið misjöfn en síðan verðum við líka að horfast í augu við að það er rótgróinn þankagangur sem er vandamál í bankakerfinu og í dómskerfinu að það sé á einhvern hátt ámælisvert að lækka skuldastöðu þegar fólk og fyrirtæki geta ekki staðið undir henni. Við höfum þá hefð að setja fyrirtæki og fólk í þrot en ekki að horfast í augu við staðreyndir og lækka skuldir áður en kemur að þrotameðferð. Það er hugmyndafræðileg breyting sem þarf að eiga sér stað. Hún er mjög mikilvæg fyrir okkur vegna þess að við eigum mikið undir því að það takist að ýta atvinnulífinu af stað og heimilin fái fast land undir fætur án þess að allir þurfi að fara í þrot.
Ég er með í vinnslu núna breytingar á samkomulaginu hvað varðar minni fyrirtækin sérstaklega þannig að þau fari hraðar í gegn því að það skiptir mjög miklu máli að þau komist hratt og örugglega í gegn. Ég held að það hafi verið nokkuð skökk áhersla að byrja á stóru fyrirtækjunum. Ég held að það skipti miklu máli að hleypa í gegn hinum mikla fjölda lítilla og meðalstórra fyrirtækja þannig að þau fái fast land undir fætur, ég held að það sé afskaplega mikilvægt. Við verðum síðan að sjá eftirlitsnefndinni fyrir aðstæðum til að starfa. Ég er ánægður með skýrsluna, mér finnst hún gefa raunsæja og heildstæða mynd af því sem er á seyði. Auðvitað vildi ég að það hefðu verið fleiri fréttir og meiri fréttir að segja en við erum að vinna í því að taka á þeim vandamálum sem hafa komið upp í meðferð (Forseti hringir.) þessara erfiðu skuldamála þannig að bankarnir geti tekið til óspilltra málanna.