skipulagsmál sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum áhuga hans á bættri stjórnsýslu og utanumhaldi að því er varðar umhverfis- og skipulagsmál. Það er sannarlega þörf á liðsmönnum í því. Ég hef sérstaklega sett af stað vinnu í umhverfisráðuneytinu við að kanna og rýna þar betur verkferla til að tryggja öruggari og skýrari og hraðari framgang mála þar og ég vænti þess að þess muni sjást staður fyrr en síðar.
Hvað varðar ábendingar þingmannsins um áfrýjun þá er það svo að þegar héraðsdómur leiðbeinir ekki aðilum hvort sem er sveitarstjórnum eða skipulagsyfirvöldum betur en hér er gert er afar mikilvægt að fá úr því skorið fyrir Hæstarétti hvaða réttaröryggissjónarmið eigi að hafa að leiðarljósi, hvort sem það er samkvæmt 34. gr. núgildandi laga eða 20. gr. nýrra laga sem ganga í gildi um áramótin.