rannsókn á ákvörðunum stjórnvalda vegna innstæðna Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu.
Frú forseti. Ég vil nota tækifærið og þakka fyrir umræðu um tillögu um rannsókn á Icesave-málinu. Ég vil þakka hv. þingmönnum Pétri H. Blöndal og Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir innlegg þeirra í þessa umræðu. Ég vil bregðast við nokkrum atriðum sem komu fram í máli þeirra. Ég er þakklátur fyrir stuðninginn sem hefur komið fram við tillöguna.
Það er alveg rétt hjá hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni að innan þingsins eru uppi áform um að koma á fót stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins sem á að fjalla um ýmis mál sem þingið telur rétt að kafa ofan í og rannsaka. Sú nefnd hefur hins vegar ekki verið skipuð. Í ljósi þess er lagt til að rannsóknin fari fram með nákvæmlega sama hætti og hafður var á þegar rannsóknarnefnd Alþingis var komið á fót undir forustu Páls Hreinssonar.
Hvað mig varðar skiptir formið ekki öllu. Það skiptir mig ekki máli hvort rannsókninni sé hagað með þessum hættinum eða hinum. Mestu máli skiptir að rannsóknin fari fram. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um að það er engin ástæða til að draga rannsóknina þrátt fyrir að Icesave-málið sem slíkt hafi ekki enn verið til lykta leitt. Ég bendi á að þetta mál er komið í allt annan farveg en það var í fyrir nokkru síðan þegar pólitískar samninganefndir leiddu málið fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Nú er kominn erlendur sérfræðingur og fagmenn sem fara með málið fyrir Íslands hönd.
Aðalmálið er að teknar hafa verið ákvarðanir og verða ekki aftur teknar. Það er engin ástæða til þess að slá rannsókninni á frest. Það er hægt að fara yfir það hvort fyrir þeim ákvörðunum sem teknar voru hafi verið efnislegar ástæður. Hvort þær ákvarðanir og embættisfærslur sem hæstv. ráðherrar bera ábyrgð á séu í samræmi við lögin sem gilda í landinu og hvort íslensk stjórnvöld hafi með þeim brugðist í hagsmunagæslu sinni fyrir hönd íslenska ríkisins og íslensku þjóðarinnar.
Hv. þm. Pétur H. Blöndal sagði undir lok ræðu sinnar að hann óttaðist að að lokinni vísun til nefndar yrði málið svæft. Það eru oft örlög mála sem þingmenn leggja fram á Alþingi. Ég vona að svo verði ekki. Ég sé ekki hvers vegna hv. allsherjarnefnd ætti að svæfa þetta mál og af hverju það þyrfti að gerast. Ég bendi á að þeir sem hafa ekkert að fela í embættisfærslum sínum, þeir sem telja sig hafa haft efnislegar ástæður fyrir ákvörðunum sínum og telja sig hafa gert rétt í embættisfærslum sínum þurfa ekkert að óttast. Þar við bætist að Alþingi hefur sagt A og þegar menn hafa sagt A verða menn líka að segja B.
Gleymum því ekki að í síðustu viku ákvað meiri hluti alþingismanna að draga fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra fyrir landsdóm. Ákæra hann og krefjast refsingar yfir honum vegna embættis færslna sinna í tengslum við Icesave-málið. Aðkoma Geirs H. Haardes að Icesave-málinu er einn af ákæruliðunum í málinu sem höfðað verður fyrir landsdómi. Þegar menn segja A verði þeir líka að segja B. Það er ekkert jafnræði í því að embættisfærslur þeirra ráðherra sem þar voru undir séu einungis rannsakaðar og þingið taki afstöðu til þeirra. Við verðum að fara leiðina á enda og rannsaka málið frá upphafi til enda. Varðandi þær ákvarðanir og embættisfærslur sem áttu sér stað eftir hrun eru þær miklu skýrari en þær ávirðingar sem fram eru komnar gagnvart Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.
Þessi þingsályktunartillaga er ekki lögð fram í kjölfar ákvörðunar Alþingis um að ákæra fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra. Tillagan var fyrst lögð fram hinn 11. júní á þessu ári. Þá hafði ekki verið tekin ákvörðun um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherra. Þá lá ekkert fyrir um að slíkt væri í farvatninu þó svo að þingmannanefnd Alþingis fjallaði um rannsóknarskýrsluna.
Það hafa oft og iðulega komið fram kröfur hér á Alþingi um að hin og þessi mál verði rannsökuð. Innrásin í Írak er eitt dæmi um það og nú eru menn að krefjast rannsóknar á málefnum sem varða sparisjóði landsins, lífeyrissjóðina, einkavæðingu bankanna og fleiri atriði. Hvernig sem á þau mál er litið verður ekki horft fram hjá því að Icesave-málið varðar einhverja mestu þjóðarhagsmuni sem Alþingi Íslendinga hefur þurft að takast á við. Ég tel að alþingismenn hafi áður óskað eftir rannsókn eins og þeirri sem hér er mælt fyrir af minna tilefni. Ég held að tilefnið til þess að kafa ofan í ákvarðanir og embættisfærslur íslenskra stjórnvalda hafi aldrei verið betra og meira til að krefjast rannsóknar en einmitt nú.
Það eru margir þættir í þessu máli sem ekki er hægt að fara yfir í stuttri ræðu. Ég vil benda hv. þingmönnum á að með þessari þingsályktunartillögu fylgir 27 blaðsíðna greinargerð. Ég ítreka það sem ég sagði í fyrri ræðu minni að meginástæða þess að tillagan er lögð fram eru þær miklu upplýsingar og sú nákvæma yfirferð sem rannsóknarnefnd Alþingis, undir forustu Páls Hreinssonar, lagði í varðandi Icesave-málið og túlkun á tilskipun Evrópusambandsins um innstæðutryggingar, skrif fræðimanna, yfirferð yfir lögskýringargögn með tilskipunum og samanburður á eldri og nýrri tilskipunum um innstæðutryggingar. Þegar þetta er lesið og niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis hljóta menn að komast að þeirri niðurstöðu þegar fyrir liggja ákvarðanir íslenskra stjórnvalda, að menn verða að kafa ofan í það hvers vegna íslensk stjórnvöld gerðu það sem þau gerðu þrátt fyrir það sem fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
Það eru fjölmörg önnur álitamál sem væri freistandi að fara yfir eins og yfirlýsingar þingmanna stjórnarflokkanna um að hæstv. fjármálaráðherra hafi vitað að hann naut ekki stuðnings meiri hluta Alþingis við undirritun Icesave-samninganna en gerði það samt. Það leiðir til þess að menn hljóta að vilja fara í þessa rannsókn. Verði það gert yrði það til að hreinsa andrúmsloftið hér á hinu háa Alþingi. Það hefur verið mikil tortryggni og togstreita milli flokka og innan einstaka flokka vegna þessa máls. Ég ítreka það að ég fæ ekki séð að það þurfi að svæfa málið í nefnd. Þeir sem telja sig örugga um að hafa breytt rétt og gætt hagsmuna íslensku þjóðarinnar eins vel og þeir gátu þurfa ekki að óttast að slík rannsókn fari fram.