139. löggjafarþing — 7. fundur,  7. okt. 2010.

þingsköp Alþingis.

6. mál
[11:36]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Ég þakka svarið og vil lýsa því yfir að ég er sammála því. Ég held að þungi orða skipti miklu meira máli en fjöldi þeirra. Ég endurtek það sem ég sagði áðan, ég vona bara að við samþykkjum þetta sem fyrst. Við getum hæglega gert það. Við getum verið búin að samþykkja þetta eftir 10 daga ef við viljum. Og nú reynir kannski bara á að gera einfalda hluti fljótt og vel.