staða Hæstaréttar Íslands í ljósi málaferla fyrir landsdómi.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þetta brýna mál sem borið er fram fyrir hæstv. dómsmálaráðherra. Nú stendur fyrir dyrum að landsdómur verður kvaddur saman. Það lá fyrir áður en Alþingi greiddi atkvæði um landsdóm að uppnám væri mikið hjá dómstólunum og mikil fjárþörf. Það hefur verið farið í niðurskurð hjá dómstólunum, m.a.s. var svo skorið af Hæstarétti í fyrra að það þurfti að segja þar upp starfsfólki, dómriturum og fleirum. Þess vegna undrar mig að ekki skuli vera komin lengra á veg sú vinna sem hæstv. dómsmálaráðherra kynnti sem þarf til að takast fyrst og fremst á við efnahagshrunið. Þetta er nokkuð sem allir vissu þegar hér hrundi allt, að dómsmálum mundi mjög fjölga, sérstaklega í ljósi þess að embætti sérstaks saksóknara var sett á laggirnar og flestir máttu vita að það mundi gefa af sér einhverja afurð, þá í formi dómsmála.
Mér sýnist staðan vera sú að fjölga þurfi hæstaréttardómurum úr níu í 15 og þá erum við ekki bara að tala um tímabundið heldur þarf að leggja aukið fjármagn í Hæstarétt. Það þarf að minnka álagið á þeim dómurum sem þar eru til að mistökin verði færri, eða raunverulega ekki mistökum heldur bara minnka álagið þannig að fólkið sem þar dæmir í helstu málefnum þjóðarinnar sé vel með á nótunum og þjáist ekki af ofþreytu. Þetta má framkvæma á þann hátt að hæstaréttardómurum verði fjölgað í 15 til framtíðar og svo detta þeir elstu út smám saman þannig að eftir 8–10 ár verður fjöldinn aftur kominn í níu. Ég geri þetta að tillögu minni, virðulegi forseti, fyrir hæstv. dómsmálaráðherra.