staða Hæstaréttar Íslands í ljósi málaferla fyrir landsdómi.
Hæstv. forseti. Ég ítreka að á þessum málum er tekið á markvissan hátt í dómsmálaráðuneytinu, það er ekki gert í neinu óðagoti. Við þurfum að átta okkur á því hver framvindan verður og eins og hér hefur komið fram eru ýmsir óvissuþættir sem þurfa að skýrast áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Ég hef þó sagt að á einhverju stigi verði nauðsynlegt að fjölga tímabundið í Hæstarétti vegna landsdómsins, en það er einnig nauðsynlegt vegna mála sem tengjast bankahruninu. Ég get upplýst hér að forseti Hæstaréttar hefur talið líklegt að fjölga þurfi um þrjá hæstaréttardómara á næsta ári bara vegna þeirra mála. Ég hef óskað eftir greinargerð frá forseta Hæstaréttar, sem jafnframt er forseti landsdóms, um þessi efni þannig að við getum þá tekið afstöðu til þeirra sjónarmiða sem þar koma fram.
Þessi mál hafa verið til skoðunar í ráðuneytinu, bæði horft til skamms tíma og einnig til langs tíma, þannig að það getur vel verið að hv. þingmaður hafi heyrt svipaða ræðu áður. Það hefur verið unnið mjög vel að þessum málum í ráðuneytinu undir forustu forvera míns í embætti. Þar hefur farið fram vinna með fulltrúum Hæstaréttar og dómstólaráði, auk þess sem fulltrúar Lögmannafélagsins og Dómarafélags Íslands hafa komið að málum ásamt ráðuneytisfólki til að finna leiðir til að efla dómskerfið til langs tíma litið og þá hugsanlega fjölga dómstigum. Það er unnið að þessum málum á markvissan hátt í dómsmálaráðuneytinu, af því þarf hv. þingmaður ekki að hafa nokkrar áhyggjur.