139. löggjafarþing — 8. fundur,  12. okt. 2010.

skuldavandi heimilanna.

[14:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé ekkert verra að opna og gegnsæja ríkisstjórnin upplýsi í þinginu hvað er í gangi og það þurfi ekki að gera allt á bak við luktar dyr þar sem þingmenn og hæstv. ráðherrar hittast.

Ég fagna þessari yfirlýsingu hæstv. ráðherra og það verður verkefni okkar á næstunni. Það vinna allir að því að koma fram með hugmyndir og þar erum við sjálfstæðismenn engin undantekning. Ég held að hæstv. ráðherra verði að gangast við því að við höfum svikalaust komið fram með hugmyndir um lausn á skuldavanda heimilanna alveg frá bankahruni.

Ég skil hæstv. ráðherra svo að hæstv. ráðherra telji, og ráðherra leiðréttir mig ef ég hef misskilið það, að um sé að ræða 6–7 þús. manns í viðbót frá bankahruni sem eiga í erfiðleikum. Ef þetta er rangt eftir haft bið ég hæstv. ráðherra að leiðrétta mig. (Forseti hringir.) En ég fagna yfirlýsingu ráðherrans um að menn séu að endurskoða það sem snýr að skattkröfunum. Það hefðum við betur gert fyrr.